5.11.07

Sund um helgar..mæli með því

Líklega er kominn tími á að bæta við prufuna. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða og það gengur ekki alveg nógu vel að komast yfir þessi verkefni, kannski ráð að fara á örnámskeið í tímastjórnun..eða hvað..ætli það.
Annars fór ég í sund um helgina..svo að drengirnir gætu sagt að þeir hefðu gert eitthvað með foreldrum sínum í skólafríinu. Ekki frásögu færandi nema hvað að við fórum í næsta bæjarfélag og prófuðum í fyrsta sinn Lágafellslaug í Mosfellsbæ. Alveg frááábær laug sem hægt er að mæla með. Hér verð ég að taka það fram að ég er mjög íhaldssöm á sundlaugar. Bjó fyrstu átján ár ævinnar í Laugarnesinu og fór því bara í Laugardalslaugina og síðan þegar ég flutti í Breiðholtið tók það mig heilt ár að fara í Breiðholtslaugina. Breiðholtslaugin hefur síðan verið mín heimasundlaug síðustu ár þar til í sumar er við fluttum í Staðarhverfið. En nú erum við búin að finna þessa fínu sundlaug í nágrenninu..

3 ummæli:

Kate sagði...

Hi Ása
Good for you going swimming! I can't remember when was the last time I did that. I never liked Breiðholt though - don't like that clothes/key/counter bit :-(

Til að muna .. sagði...

Til hamingju með nýju síðuna - en ég held við getum auðveldlega flutt þig milli landa í dag - svona ef þú vilt. :-)

Þorgerður AKA Toggan sagði...

Hæ hæ
Já ég bara man ekki hvenær ég fór síðast í sund, ætli það hafi ekki verið þegar ég var með MOrra í ungbarnasundi. Uss þetta er ekki hægt.
Flott nýja síðan :)