17.11.07
Nemablogg
Gaf mér loksins tíma til að skoða nemabloggin og mér fannst það alveg frábært. Gaman að fá að kynnast samnemendum sínum á þennana hátt. En ég hefði alveg viljað sjá mynd af fólki ..ekki það að ég sé með mynd af sjálfri mér hér, svona til að átta sig á því hver er að skrifa. Er það ekki bara næsta örverkefni..er reyndar ekki búin að senda inn heimasíðuhugmynd. Ég er enn að furða mig á því hvað matsverkefnið tók mig langan tíma og jafna mig á því...hm
10.11.07
Aulahrollur !!!
Hvers vegna fæ ég aulahroll þegar ég sé fréttir af fólki sem stendur í biðröð eftir að komast í dótabúð sem veriðer að opna !!! Annars er það kannski ekkert aulalegra en að lesa fréttir af opnunarsamkomum verslana þar sem SH fólkið er mætt í sínu fínasta pússi með glas í hendi :- ..Á
8.11.07
Nýjustu tölur úr rigningakönnuninni..
..eru að 2 af 3 þátttakendum eða 66% eru mjög sammála og sá þriðji er heldur sammála eða 33% þátttakenda. Ég persónulega er eiginlega ekkert sérlega sammála þessu, mér finnst rigningin ekkert sérlega góð ég tala nú ekki um ef að rokið fylgir með.
5.11.07
Sund um helgar..mæli með því
Líklega er kominn tími á að bæta við prufuna. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða og það gengur ekki alveg nógu vel að komast yfir þessi verkefni, kannski ráð að fara á örnámskeið í tímastjórnun..eða hvað..ætli það.
Annars fór ég í sund um helgina..svo að drengirnir gætu sagt að þeir hefðu gert eitthvað með foreldrum sínum í skólafríinu. Ekki frásögu færandi nema hvað að við fórum í næsta bæjarfélag og prófuðum í fyrsta sinn Lágafellslaug í Mosfellsbæ. Alveg frááábær laug sem hægt er að mæla með. Hér verð ég að taka það fram að ég er mjög íhaldssöm á sundlaugar. Bjó fyrstu átján ár ævinnar í Laugarnesinu og fór því bara í Laugardalslaugina og síðan þegar ég flutti í Breiðholtið tók það mig heilt ár að fara í Breiðholtslaugina. Breiðholtslaugin hefur síðan verið mín heimasundlaug síðustu ár þar til í sumar er við fluttum í Staðarhverfið. En nú erum við búin að finna þessa fínu sundlaug í nágrenninu..

Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)